Frétt

12. 11 2019

Stutt og snörp námskeið fyrir starfsfólk LSH: Hvar og hvernig er best að leita?

45 mínútna námskeið hjá Heilbrigðisvísindabókasafninu í Eirbergi.
Námskeiðið er fyrir alla starfsmenn LSH sem vilja auka þekkingu sína á hvernig er best að finna nýjustu rannsóknir, eru að gera kerfisbundið yfirlit eða eru á leið í nám. Námskeiðin verða haldin í kennslustofu bókasafnsins á eftirfarandi tímum:
19. nóvember kl.  13-13:45 22. nóvember kl.  10-10:45 26. nóvember kl.  13-13:45 29. nóvember kl.  10-10:45
Á námskeiðunum verður farið í hvernig er best að leita út frá markvissri rannsóknarspurningu (PICO)
· Hvaða gagnasöfn eru í boði. · Hvernig er hægt að leita í mismunandi gagnasöfnum. · Hvað er nauðsynlegt að skoða ef gera á kerfisbundið yfirlit. · Boolean leit. · Nota MeSH.
Væntanlegir þátttakendur skrái sig með því að senda tölvupóst á bokasafn@landspitali.is. Á hverju námskeiði er pláss fyrir 6 nemendur.
Passa þessir tímar ekki fyrir þinn hóp? Hafðu þá samband í síma 5431450 eða bokasafn@landspitali.is

 
 

Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania