ÍRIS

 

ÍRIS - rannsóknir á Íslandi 

IRIS (Icelandic Research Information System) er kerfi sem sýnir rannsóknavirkni íslenskra háskóla og stofnana sem eiga aðild að kerfinu. Rekstur kerfisins er samstarfsverkefni háskóla og stofnana sem aðild eiga að verkefninu. Skoða má virkni einstakra rannsakenda, stofnana og innan einstakra fræðigreina.

ÍRIS tók við hlutverki Hirslu, varðveislusafns Landspítala, sem bókasafnið hafði skráð alla útgáfu starfsfólks Landspítala í frá árinu 2005.

Hér má skoða rannsóknarafurðir  Landspítala: 

IRIS upplýsingakerfið er í þróun og mun taka breytingum eftir því sem verkefninu vindur fram, þ.m.t. íslensk þýðing kerfisins.Það er rekið af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, en mennta- og menningarmálaráðuneytið keypti kerfið og fól safninu rekstur og umsjón þess.

 

 

 

 

Hirsla, vísinda- og fræðsluefnissafn Landspítala

Hirsla er rafrænt varðveislusafn, sérhannað til að vista, varðveita og miðla því vísinda- og fræðsluefni sem starfsmenn Landspítala hafa gefið út samhliða vinnu sinni eða námi við spítalann.

Markmið Hirslu eru að auðvelda starfsmönnum Landspítala
 
• að vista varanlega rafræn handrit (greinar)
• að fá betra yfirlit yfir eigin skrif (greinar) og umsýslu þeirra
• að stækka sinn lesendahóp
• að hraða birtingu rannsóknaniðurstaðna
• að fjölga tilvísunum í eigin verk (hærri “citation impact”)
• að auka sýnileika í rannsóknum sem auðveldar aðgengi að samstarfsverkefnum og styrkjum
• að uppfylla kröfur fjölmargra styrkveitenda sem krefjast þess að afrakstri rannsókna sem styrktar hafa verið sé miðlað í opnum aðgangi

Hirslan tryggir jafnframt sýnileika greina og einfaldara aðgengi lesanda þeirra, óháð landamærum, stað og stund m.a. vegna opins aðgangs og sjálfvirkrar lyklunar leitarvéla (Google, Yahoo).

* Stutt grein um Hirslu

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania