Frétt
25. 01 2011
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir I og II komnar í Hirsluna
Bækurnar Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir I og II sem komu út árin 2007 og 2009, eru nú komnar í fullri lengd í Hirsluna, rafrænt bókasafn Landspítala.
Herdís Sveinsdóttir prófessor er ritstjóri fyrri bókarinnar og hún ásamt Katrínu Blöndal og Brynju Ingadóttur, klínískum sérfræðingum í hjúkrun eru ritstjórar þeirrar síðari.
Höfundar bókarinnar eru starfandi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri og fjalla allir kaflarnir um hjúkrun aðgerðasjúklinga.
- Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir : um hjúkrun sjúklinga á skurðdeildum
- Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II : um hjúkrun sjúklinga á skurðdeildum