Vísindagreinar
Leit að tímaritsgreinum getur verið tvenns konar:
- Að staðsetja tilteknar tímaritsgreinar,(þ.e. heiti tímarits, ártal, árgangur og heiti greinar og/eða höfunda(r) er vitað.
Þá er best að nota tímaritalista bókasafnsins. - Að finna tímaritsgreinar um ákveðið efni eða eftir ákveðna höfunda, þá eru gagnasöfnin á þessari síðu notuð:
Vísindagreinar á heilbrigðissviði
PubMed
- Aðgangur: Ókeypis.
- Vísar í efni á öllum sviðum heilbrigðisvísinda auk lífvísinda. Meginuppistaða PubMed er gagnsafnið MEDLINE sem einnig er í boði frá OVID.
MEDLINE frá OVID
- Aðgangur: Landspítali, Heilbrigðisvísindasvið HÍ, OpenAthens fjaraðgangur.
- Vísar í efni á öllum sviðum heilbrigðisvísinda auk lífvísinda.
CINAHL frá EBSCO
- Aðgangur: Landspítali, Heilbrigðisvísindasvið HÍ, OpenAthens fjaraðgangur.
- Vísar í efni á sviði hjúkrunarfræði og skyldra greina s.s. iðju- og sjúkraþjálfunar.
Hirsla, vísinda- og fræðsluefnissafn Landspítalans
- Aðgangur: Ókeypis.
- Vísinda- og fræðsluefni sem starfsmenn LSH hafa gefið út. Greinar úr Læknablaðinu, Tímariti hjúkrunarfræðinga og fleiri íslenskum tímaritum á heilbrigðissviði í fullum texta (hægt að leita eftir höfundi, efni o.fl.)
PsycINFO frá OVID
- Aðgangur: Landspítali, Heilbrigðisvísindasvið HÍ, OpenAthens fjaraðgangur.
- Vísar í efni á sviði sálfræði, geðlæknisfræði og skyldra greina.
Vísindagreinar á heilbrigðissviði - og fleiri fræðasviðum
Google Scholar
- Aðgangur: Ókeypis.
ProQuest
- Aðgangur: Landið allt.
- Um þrjátíu gagnasöfn á ýmsum efnissviðum, þar af sjö á heilbrigðissviði. Hægt er að leita í öllum söfnunum, nokkrum eða einu í einu eftir því sem best hentar. Upplýsingar um nýtt viðmót er hægt að nálgast á forsíðu ProQuest eða á hjálparsíðu.
Scopus
- Aðgangur: Landsaðgangur
- Scopus er gagnasafn og leitarvél sem skilar einkum niðurstöðum úr ritrýndum tímaritum og vísindalegum heimasíðum á flestum efnissviðum. Inniheldur m.a. allt efni úr MEDLINE.
Web of Science
- Aðgangur: Landsaðgangur
- Vísar í efni á öllum helstu fræðasviðum. Býður upp á þann möguleika að skoða hverjir hafa vitnað í tilteknar greinar. Einnig er tengill í þær greinar sem vitnað er í. Meira um WoS.