UpToDate

Kynning á innra neti.jpg (26382 bytes)

 

Skráning á UpToDate® Anywhere

Stuðningur UpToDate við klíníska ákvarðanatöku er nú eins nálægt og snjalltækið þitt eða tölvan. UpToDate Anywhere býður upp á gagnreyndar leiðbeiningar þar sem þú ert, þegar þú þarft þær.

Smellið hér á leiðbeiningar >> (pdf)

UpToDate í áskrift >> 

Þetta er það sem þú færð með UpToDate Anywhere:

  • Ókeypis UpToDate smáforrit fyrir iOS®, Android™ eða Windows 8 tæki.
  • Einfaldan aðgang að UpToDate úr hvaða nettengdri tölvu sem er.
  • Ókeypis símenntunarpunkta þegar þú leitar svara í UpToDate við klínískri spurningu hvort sem er innan tölvunets Landspítala eða í fjaraðgangi, þar með talið í snjalltækjum þínum.

Skráning er auðveld:

  1. Farðu inn á UpToDate þegar þú ert innan Landspítala www.uptodate.com/online
  2. Smelltu á Log in/Register efst til hægri á skjánum á innskráningarsíðunni
  3. Búðu til notandanafn (má vera netfang) og lykilorð á UpToDate Anywhere skráningarsíðunni
  4. Þú ert nú skráður notandi og færð tölvupóst því til staðfestingar

Smelltu hér fyrir skráningarleiðbeiningar

Til þess að aðgangurinn þinn haldist virkur er mikilvægt að þú skráir þig inn á UpToDate innan LSH netsins, Læknagarðs eða Eirbergs a.m.k. einu sinni 3ja mánaða fresti. Ef þú gerir það ekki þá munu smáforritin sem þú hefur hlaðið niður ekki virka áfram.

Spurningar? Sendu tölvupóst á: annasgu@landspitali.is

Stuðningur við klíníska ákvarðanatöku með UpToDate:

UpToDate inniheldur meira en 10.000 efnisgreinar (Topics) sem ná yfir almennar lyflækningar og meira en 20 sérgreinar; einnig gagnagrunn um valin lyf og milliverkanir þeirra (í samstarfi við Lexicomp® ); sjúklingafræðslu um tæplega 1.500 vandamál; meira en 27.000 myndir og tengla á yfir 380.000 heimildir. UpToDate er notað af meira en 850.000 læknum í 164 löndum og er notað til stuðnings við klínískar ákvarðanir mörg þúsund sinnum á dag.

UpToDate í áskrift 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania