Frétt
03. 12 2010Að sjá afkastamestu höfunda á því efnissviði sem leitað er.
SciVerse - nýir leitarkostir
Elsevier hleypti á árinu af stokkunum leitarviðmótinu SciVerse þar sem hægt er að leita í Scopus og ScienceDirect í einu.
SciVerse býður einnig upp á þrjá nýja leitarkosti:
Að leita aðeins í aðferðafræðihluta vísindagreina. Að sjá niðurstöður í fullum setningum til að auðvelda yfirsýn.SciVerse leitar einnig í Scirus, sem skilar inn miklu efni í opnum aðgangi af vefnum. Þar á meðal er efni úr Hirslunni, opnu varðveislusafni Landspítala.
Í Hirslunni eru efnistekin íslensk tímarit á sviði heilbrigðisvísinda eins og Læknablaðið og Geðvernd. Þetta þýðir að hægt er að leita á íslensku að efni á íslensku í SciVerse. Hirslan er í opnum aðgangi á vefnum og hægt að ná í greinarnar í fullri lengd þar.
Krækja er á SciVerse á gagnasafnasíðu bókasafnsins.
Til baka