Lerki Firefox PC stillingar

Skráning:

  • Skráðir notendur fá sendan tölvupóst frá „Bokasafn LSH” með notendanafni og lykilorði. Þar eru einnig leiðbeiningar um hvaða stillingar þarf að setja inn í vefskoðara (vafra, browser) tölvunnar til að Lerkið hleypi viðkomandi inn á læst gögn.
  • Lykilorðum er breytt árlega í janúar óháð því hvenær ársins aðgangi var úthlutað í fyrsta sinn og gerist það sjálfvirkt.
  • Mikilvægt er að geyma þann tölvupóst og gæta þess að aðrir geti ekki nálgast aðgangsorðin. Þau eru eingöngu ætluð til þinna nota og óleyfilegt að láta þau öðrum í té.

Stillingar í tölvu

Firefox fyrir PC:

Smella á - Tools - Options, veljið flipann Advanced og þar undir flipann Network - smellið á hnappinn Settings -
haka við: Automatic proxy configuration
skrifa í URL: http://lerki.landspitali.is/proxy.pac
ATH. engin www í slóðinni!

Firefox með íslensku viðmóti - skjámyndirnar virka að sjálfsögðu eins.

1. Notið Breyta-valmynd og veljið Valkostir.
2. Veljið þar Ítarlegt lengst til hægri á borðanum efst, undir flipanum Netkerfi.
3. Smellið þar á hnappinn Stilling efst til hægri.
4. Veljið Sjálfvirkt URL fyrir stillingar á staðgenglum
5. Setjið inn: http://lerki.landspitali.is/proxy.pac
ATH. engin www í slóðinni!

Stillingar í Firefox PC fyrir Lerki

 

 

Virkni Lerkis:
Lerkið virkar þannig að þegar fólk smellir á slóð aðgangsstýrðra gagna (reynir að komast inn á gagnasafn eða rafrænt tímarit sem er annars lokað utan spítalans) á vef bókasafnsins þá opnast innskráningargluggi þar sem beðið er um notandanafn og lykilorð að Lerki. Þessi innskráning gerist bara einu sinni meðan vefskoðarinn (vafri, browser) er opinn.
Lerkisskráning
Gögn safnsins

 

 

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania